Markaðsvirði eignar
Kr63.700.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Glæsileg einbýli í byggingu á La Marquesa golfsvæðinu, í einungis 35 mínútna akstursfjarlægð frá Alicante flugvelli. Stutt er á strendur Guardamar og La Marina og iðandi mannlíf Ciudad Quesada er skammt undan en La Marquesa liggur í jaðri Quesada.
Um er að ræða einbýli á 2 hæðum með stórum svölum, góðum garði/verönd, einkasundlaug og bílageymslu undir húsinu. Stofa, borðstofa og eldhús eru í rúmgóðu opnu rými á neðri hæð. Þrjú svefnherbergi eru í eigninni, 2 á neðri hæð og 1 á efri hæð og 1 baðherbergi er á hvorri hæð. Útgengt er á 50 fm svalir á efri hæð sem skarta glæsilegu útsýni yfir golfvöllinn.
Verð frá 418.670 €
Nánar um svæðið:
Ciudad Quesada – Rojales er staðsett um það bil 8 kílómetra inni í landið frá Costa Blanca við Guardamar de la Segura. Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í 50 kílómetra fjarlægð og næsta strönd er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Miðbær Ciudad Quesada er vel búinn verslunum, börum, veitingastöðum, golfvelli og eigin vatnagarði. Einbýli og raðhús eru fyrirferðamesti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er það að finna gott úrval íbúða. Framboðið er einkar heillandi: Gæði á góðu verði.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og [email protected]