Markaðsvirði eignar
Kr54.600.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Lítill kjarni 6 einbýlishúsa á frábærum stað í Doña Pepa í göngufjarlægð frá þjónustukjörnum, veitingastöðum, verslunum, apótekum ofl. ofl. Hér er um að ræða mjög góð kaup á vinsælu svæði.
Húsin eru 3 svefnherbergja og 3 baðherbergja á tveimur hæðum og eru 116 fm. Garðurinn er frá 182 fm til 252 fm. Einkabílastæði innan lóðar. Einkasundlaug fylgir þessum húsum og er hún 6.2 m x 2.5 m.
Á 1. hæð er eitt svefnherbergi og salerni, stílhreint og fullbúið opið eldhús og stofa / borðstofa með rennihurðum út í garðinn.
Á 2. hæð hússins eru tvo svefnherbergi og tvö baðherbergi og 23 fm svalir sem gengið er út á úr hjónaherberginu.
Hverju húsi fylgir öll lýsing inni og úti, 3 x sólarsellur, aircon (heitt og kalt) og tæki í eldhús.
Verð frá 369.000 til 390.000 evrur (fer eftir stærð garðs).
Til afhendingar í September 2024.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]