Markaðsvirði eignar
Kr17.900.000 17.9Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Snyrtileg og vel umgengin 2 svefnherbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi rétt við alþjóðagarðinn, "parc jardin de las naciones".
Í húsinu er sameiginleg sundlaug á jarðhæð fyrir íbúa og þessari íbúð fylgir að auki bílastæði í lokuðum bílakjallara. Staðsetningin er frábær ef þú vilt vera nálægt öllu og geta haft flest í göngufæri eins og verslanir, veitingastaði og ströndina.
Svefnherbergin eru tvö ásamt einu baðherbergi, eldhúskrókur og stofa með litlum svölum sem snúa í austur.
Eignin er fullbúinn og fylgir innbú allt með.
Verð 119.900 evrur.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 558-5858 og [email protected]
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.