Aftur á yfirlitssíðu

Íbúð í fjölbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1019
€. 99.000

2-3 svefnherbergja íbúðir í San Fulgencio

Kr15.100.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 57 fm
Fjöldi svefnherbergja 2 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 1 baðherbergi
-
-
-
-

Markaðsvirði eignar

Kr15.100.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Mjög góð kaup á endurnýjuðum íbúðum í góðum kjarna í bænum San Fulgencio sem er smábær rétt við La Marina og einungis 25 km frá flugvellinum í Alicante og 7 km frá sjó. Í San Fulgencio ertu með alla innviði sbr. heilsugæslustöð, verslanir, veitingastaði, apótek og afþreyingu en bærinn hefur stækkað mikið undanfarin ár og er andrúmloftið mjög alþjóðlegt.
Íbúðirnar er hægt að fá 2 eða 3 svefnherbergja og með stæði í bílageymslu. Fyrir miðju kjarnans er sameiginleg sundlaug og sólbaðsaðstaða fyrir eigendur. Íbúðirnar hafa verið endurnýjaðar sbr. með rafmagn, lýsingu ofl. og eru því að mörgu leiti eins og nýjar eignir.

Frábært verð:
Frá 99.000 evrur til 139.000 evrur.

Nánar um svæðið:

San Fulgencio er alvöru spænskur smábær við Costa Blanca. Bærinn er ca. 25 km. frá flugvellinum í Alicante og ca. 7 km frá strönd La Marina. Alla helstu þjónustu er að finna í bænum ásamt fallegum torgum, kaffíhúsum og veitingastöðum. Svæðið er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt þar sem njóta má lífsins utandyra. Stutt frá er Lagunas de la Santa Pola, náttúrusvæði með skemmtilegum gönguleiðum, saltvötnum og fallegro strönd við Santa Pola, playa Lisa. Staðsetning á Íberíuskaganum þýðir meðalhita um 19°C og meira en 320 sólskinsdaga á ári hverju.
Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.