Aftur á yfirlitssíðu

Hacienda Riquelme Golf

Holur: 18
Lengd: 6416 metrar
Par 72
Upplýsingar

Hacienda Riquelme-golfvöllurinn er hannaður að sjálfum Jack Nicklaus sem fékk algerlega frjálsar hendur. Hönnun vallarins er úthugsuð og gerir miklar kröfur til kylfinga, þeir þurfa helst að ráða yfir ýmsum tegundum högga og ráða við flestar kylfurnar í töskunni. Þetta er ekkert endilega völlur fyrir byrjendur. Glompur og vatnshindranir eru ekki uppá punkt á Hacienda Riquelme.

Völlurinn var vígður árið 2007, hann er par 72 og 6416 metra langur sé miðað við hvíta teiga. Stórar tjarnir, svo miklar að jafnvel má tala um vötn, setja svip sinn á völlinn og eru vitaskuld í leik. Stórir bönkerar og djúpir eru líka einkennandi. Á brúnum þeirra er svo yfirleitt allmikill kargi, þannig að það getur reynst vandasamt að ná sér uppúr þeim.

Brautirnar eru tiltölulega breiðar en það þýðir þó ekki að menn geti leikið kæruleysislega, ef kylfingar ætla sér að ná góðu skori þurfa þeir að leggja sinn leik vandlega upp.

Flatirnar eru í stíl Nicklaus; stórar en í þeim eru mikil brot. Sumar hverjar liggja á nokkrum pöllum og ef menn eru tiltölulega nákvæmir í járnahöggunum ættu þeir fyrir alla muni að nýta sér þá hæfileika sína þegar þeir slá inná flatirnar. Og reyna að finna flaggið því þarna eru þrípútt nokkuð sem þeir sem hafa spilað Hacienda Riquelme þekkja of vel. 

Umhverfi golfvallarins er skemmtilegt, eyðimerkurlandslag og í kringum völlinn eru vinsælar orlofsíbúðir. Hacienda Riquelme er heildarkonsept sem þýðir að við völlinn að finna flest það sem gleðja má eins og einn kylfing. Verslun með golfvarningi, æfingaaðstaðan er mjög góð; puttvöllur, glompur til æfinga og höggbrautir. Í klúbbhúsinu er ágætur veitingastaður og kaffihús – á Spáni er litið svo á að það fylgi að menn geri vel við sig í mat og drykk eftir golfhringinn.

Sjá staðsetningu

Allir viðskiptavinir Spánarheimlis sem eru í
Vildarklúbbnum njóta afsláttarkjara á vallargjöldum í gegnum GÍS.