Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Þetta glæsilega nýbyggingarverkefni samanstendur af aðeins 8 sjálfstæðum einbýlishúsum.
Húsin eru öll á einni hæð og bjóða upp á 3 rúmgóð svefnherbergi og 2 baðherbergi, með byggðu flatarmáli upp á um 118,98 m². Rýmin eru vel skipulögð og hönnuð með áherslu á þægindi og hagnýta nýtingu.
Hvert hús er með einkasundlaug sem er 8 x 3 metrar, umkringda fallegum einkagarði með áveitukerfi, ásamt rúmgóðum útiveröndum sem eru um 46 m².
Að auki eru húsin með 61 m² einkaþakverönd (solarium), sem er fullkomin til að útbúa notalegt slökunarsvæði og njóta hins yndislega Miðjarðarhafsloftslags allt árið um kring.
Húsin eru afhent með eldhústækjum, snjallheimiliskerfi með rafdrifnum gluggahlerum og gólfhita á baðherbergjum.
Hver eign stendur á einkalóð sem er á bilinu 366,67 m² til 442,48 m², sem tryggir rúmgott umhverfi og gott næði.
Verð frá 589.900 € til 624.900 € + VSK.
Áætluð afhending á öðrum ársfjórðungi 2027.
Um svæðið:
Húsin eru staðsett á hinu eftirsótta svæði Finca Golf, í Orihuela, sem er þekkt fyrir rólegt umhverfi náttúrufegurð og frægan golfvöll. Innan fárra mínútna er aðgangur að verslunarmiðstöðvum, matvöruverslunum, veitingastöðum og allri helstu þjónustu. Svæðið er einnig afar vel tengt nálægum ströndum og helstu samgönguæðum, sem auðveldar aðgengi að borgum eins og Alicante og Murcia. Fullkomið fyrir þá sem vilja njóta hágæða lífsgæða og þæginda á einstökum stað.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is