Spánarheimili kynnir:
Glæsileg þriggja svefnherbergja penthouse íbúð í eftirsótta Green Hills kjarnanum í Villamartin
Íbúðin er á efstu hæð í Green Hills kjarnanum í Villamartin með stórum svölum sem snúa í suður sem eru lokaðar með gleri og einnig glæsilegum 45 m2 einkaþaksvölum
Það er fallegur sameiginlegum garði með frábærri aðstöðu, í garðinum er upphituð inni sundlaug, úti sundlaug, sauna og líkamsræktarsalur. Einnig fylgir einkabílastæði í bílastæðahúsi innan garðsins með fjarstýrðu hliði
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Frá stofu er rennihurð út á góðar svalir sem búið er að loka með gleri og nýtast sem stækkun á stofu. Frá stofunni er síðan stigi uppá frábærar 45 m2 þaksvalir með góðri aðstöðu til að njóta blíðunnar.
Frábær eign á vinsælum stað, matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, marga flotta golfvelli og La Zenia verslunarmiðstöðina
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.