Spánarheimili kynnir: Frábær raðhús í Avileses í Murcia. Avileses er snyrtilegur og rólegur bær á milli Balsicas og Sucina í Murcia. Stutt er í flest alla þjónustu og aðeins um 10 mínútur að keyra á næsta golfvöll.
Þetta verða 10 eignir og verður hver eign með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt einkasundlaug, þaksvölum og bílastæði inni á lóð. Þessi eign er á 2 hæðum og á jarðhæð er stórt og rúmgott eldhús opið til stofu og borðstofu. Frá stofu er gengið út á rúmgóða verönd þar sem er einkasundlaug og fullkomið grillsvæði. Einnig er eitt svefnherbergi og baðherbergi á jarðhæð. Á annarri hæð eru 2 svefnherbergi og annað þeirra er master svíta og er með einkabaðherbergi.
Verð 279.900 €.
Tilbúin til afhendingar
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is