Spánarheimili kynnir:
Flott raðhús sem er staðsett í vinsæla Vista Azul kjarnanum í Lomas de Cabo Roig. Stutt frá eignninni er veitingastaðakjarni með margskonar veitingastöðum, bari og aðrar þjónustur
Húsið er á tveimur hæðum með 28 m2 þaksvölum, einnig er verönd að framan og verönd að aftan sem hefur beint aðgengi í sameiginlega garðin.
Sameiginlegi garðurinn hefur tvær sameiginlegar sundlaugar, önnur sundlaugin er upphituð. Það fylgir einnig einkabílastæði í bílakjallara
Húsið samanstendur af þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, skipt á milli tveggja hæða.
Gengið er inn á jarðhæðinni og þar má finna stofu/borðstofu, eldhús með aðengi út á verönd og eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi.
Á efri hæðinni má finna hin tvö svefnherbergin og annað baðherbergið
Nánar um svæðin:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.