Spánarheimili kynnir: Fallegt og vel staðsett hús í La Regia, í stuttri fjarlægð frá Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni og í göngufæri frá göngugötunni í Cabo Roig þar sem hægt er að finna margskonar veitingastaði og skemmtun.
Húsið er á tveimur hæðum og býður upp á tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Á neðri hæð er að finna eldhús, stofu og gestasalerni með sturtu. Möguleiki er að gera þriðja herbergið niðri með því að minnka aðeins stofuna.
Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi og baðherbergi og er útgengt úr báðum herbergjum út á svalir. Einnig eru rúmgóðar þaksvalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar allt árið um kring.
Innan lóðarinnar er einnig einkabílastæði.
Að auki er fallegur sameiginlegur garður á svæðinu með sameiginlegri sundlaug.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is