Spánarheimili kynnir: Nýtt verkefni í Bigastro. Um er að ræða fjögurra hæða hús sem staðsett er á einni af hæstu hæðum Bigastro, sem býður upp á frábært útsýni yfir Vega Baja.
Íbúðirnar eru á bilinu 61,30 m² til 80,20 m² og eru allar með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, eldhús er opið við stofu þaðan sem útgegnt er út á svalir. Svalirnar eru frá 13 m² til 89,47 m². Íbúðirnar á efstu hæð eru einnig með einka þaksvölum (solarium) sem eru 51,60 m². Íbúðirnar bjóða upp á mjög góð útisvæði þar sem hægt er að njóta veðurblíðunnar til hins ýtrasta.
Hverri íbúð fylgir bílastæði í bílakjallara, og sumum fylgir einnig geymsla, sem tryggir bæði þægindi og öryggi fyrir íbúa. Í miðjum kjarnanum er falleg sameiginleg sundlaug, fullkomin til að kæla sig niður og njóta hlýrra daga í Alicante. Einnig er sameiginleg líkamsræktarstöð sem gerir það að verkum að ekki þarf að leita út fyrir kjarnann til að halda sér í formi.
Verð frá 174.000 € til 218.000 €
Um svæðið:
Bigastro er sjarmerandi bæjarfélag í Vega Baja, þekktur fyrir miðjarðarhafsloftslag, ró og framúrskarandi lífsgæði. Svæðið sameinar þægindi staðbundinna þjónustu, svo sem verslana, skóla og veitingastaða, með auðveldu aðgengi að ströndum og golfvöllum í nágrenninu, sem gerir það að kjörnum stað fyrir fjölskyldur og þá sem leita að friðsælu heimili. Grænt landslagið og rólegt umhverfi býður upp á fullkomið jafnvægi milli náttúru og nútímalegs lífs.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is