Spánarheimili kynnir: Nýtt íbúðaverkefni með nútímalegri hönnun og björtu skipulagi við La Serena golfvöllinn í Los Alcazares.
Um er að ræða íbúðir ýmist á jarðhæð eða efri hæð á bilinu 70,50m² til 80 m² með ýmist tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Eldhús er opið við stofu með útgengi á ýmist svalir eða einkagarð. Íbúðirnar eru með svölum á bilinu 12 m² til 85,40 m². Jarðhæðirnar bjóða upp á einkagarða og efri hæðirnar eru með einka þaksvalir (solarium) frá 68 m² til 80 m², fullkomið til að njóta sólarinnar eða skapa afslappandi útisvæði.
Íbúðunum fylgir einnig stæði í bílageymslu. Sameiginleg sundlaug og æfingarsalur sem veitir öll þægindi sem nauðsynleg eru fyrir þægilegan og heilbrigðan lífsstíl.
Verð frá 299.000 € til 464.000 €
Um svæðið:
Los Alcázares er bær við strendur Mar Menor, um 20 mínútum frá La Zenia eða í átt að Cartagena. Þetta er rólegur spænskur bær sem býður upp á margvíslega þjónustu, veitingastaði og strendur. Roda Golf er golfvöllur í nágrenni við bæinn.
Espacio Mediterráneo er stór verslunarmiðstöð í um 20 mínótna akstri frá Los Alcázares eða við borgina Cartagena, þar sem hægt er að finna veitingastaði, fataverslanir, matvöruverslanir, húsgagnaverslanir og fleira.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is