Spánarheimili kynnir: Glæsileg íbúð sem er staðsett í einstöku hverfi í Punta Prima, aðeins örfá skref niður að strönd og stutt er í næstu veitingastaði og þjónustur á svæðinu.
Fallegur íbúðakjarni með grænum svæðum og sameiginlegum sundlaugum sem eigendur hafa afnot af.
Gengið er inn í forstofu með stórum skápum fyrir yfirhafnir og þaðan er gangur sem leiðir inn í stórt og opið rými með rúmgóðri stofu, borðstofu og hálf opnu eldhúsi sem er með aðgengi í þvottahúsið.
Frá stofunni er útgengt út á tvennar svalir, aðrar sem snúa inn í garðin með fallegu útsýni yfir sundlaugina og grænu svæðin þar í kring og aðrar svalir sem eru 50 m2 með útsýni út á miðjarðarhafið.
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og bæði herbergin eru en suite, með sér baðherbergi
Það fylgir einnig einkabílastæði og geymsla í bílakjallara.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is