Spánarheimili kynnir:
Frábær íbúð á jarðhæð sem er staðsett í eftirsóttu hverfi í Villamartin. Stutt er í þjónustur og veitingastaði á svæðinu og er aðeins nokkrar mínútur frá vinsælu verlsunarmiðstöðina Zenia Boulevard
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og er hönnuð með opnu plani þar sem eldhúsið er opið til stofu og frá stofu er aðgengi út á rúmgóða verönd
Það fylgir með bílastæði og gemysla í bílakjallara svo er stór sameiginlegur garður með sameiginlegum sundlaugum sem eigendur fá afnot af.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.