Spánarheimili kynnir
Flott íbúð á annari hæð í eftirsóttu hverfi í Villamartin. Stutt er í þjónustur og veitingastaði á svæðinu og er aðeins nokkrar mínútur frá vinsælu verlsunarmiðstöðina Zenia Boulevard
Íbúðin er með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og er hönnuð með opnu plani þannig eldhús er opið til stofu og frá stofu er aðgengi út á svalir sem snúa í suðurátt
Það fylgir með bílastæði og gemysla í bílakjallara. Það fylgir einnig einkaþaksvalir með þessari íbúð og svo er flott sameiginleg sundlaug sem eigendur fá afnot af.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.