Spánarheimili kynnnir: Notalega íbúð á jarðhæð staðsett í flottum íbúðakjarna í Torrevieja með stórum sameiginlegum garði með sameiginlegri sundlaug og leikvelli. Stutt er í þjónustu á svæðinu og aðeins nokkrum mínútum frá næstu strönd í Torrvieja.
Íbúðin er á jarðhæð og hefur rúmgóða verönd/garð þar sem hægt er að njóta góðra stunda í sólinni.
Íbúðin er 78 m2 með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og er með eldhús sem er opið við stofu.
Það fylgir einnig einkabílastæði og geymsla í bílakjallara.
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is