Spánarheimili kynnir: Glæsileg tveggja hæða einbýlishús sem eru hönnuð til að bjóða upp á þægindi, næði og nútímalegan lífsstíl.
Húsin eru 145,10 m² bjóða upp á tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Eldhús er opið við stofu með útgengi út á verönd. Húsin eru hönnuð til að hámarka náttúrulegt ljós og nýtingu rýmisins.
Eignirnar eru staðsettar á 130 m² lóðum, með veröndum frá 81 upp í 84 m² og einka þaksvölum sem eru 50 m², fullkomnar til að njóta útiveru og slökunar í sólskini. Að auki býður hver villa upp á einkasundlaug og bílastæði innan lóðar, sem tryggir þægindi og næði.
Verð frá 459.000 € upp í 490.000 €
Um svæðið:
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðum á suðurhluta Costa Blanca og er staðsettur um 15 kílómetrum norðan við Torrevieja. Bærinn er þekktur fyrir um 10 kílómetra langa strandlengju, umlukta fallegum furuskógi. Þar eru átta víðáttumiklar gullnar sandstrendur, þar á meðal nektarströndin Los Tusales og hin einstaka Pinada-strönd, sem liggur að síbreytilegum sandöldum meðfram strandgönguleiðinni í Guardamar. Úrval fasteigna á svæðinu er fjölbreytt og á strandlengjunni má finna sérstaklega áhugaverðar eignir með stórkostlegu sjávarútsýni.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is