Spánarheimili kynnir: Glæsilegar nýjar íbúðir í El Raso. Um er að ræða fjölbýilshús á 4 hæðum og öllum íbúðum fylgja rúmgóðar svalir á billi 22-42fm.
Íbúðirnar eru 84,75 m² og 86,00 m², vel skipulagðar með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Eldhús er opið við stofu með útgengi út á rúmgóðar svalir. Íbúðirnar eru hannaðar til að hámarka náttúrulegt ljós og nýtingu rýmisins. Allar íbúðirnar bjóða upp á rúmgóðar svalir frá 22 m² upp í 42 m², fullkomnar til að njóta veðurblíðunnar og útiverunnar.
Íbúðirnar á efstu hæð skera sig úr með einka þakvölum sem eru frá 67,6 m² og 85,5 m², fullkomnar til að búa til slökunar-, tómstunda- eða samverusvæði utandyra.
Byggingin er fullkomnuð með framúrskarandi sameiginlegum svæðum, sem innihalda sameiginlega sundlaug, coworking svæði, fullbúna líkamsræktarstöð og bílastæði.
Verð frá 284.000 € upp í 395.000 €
Um svæðið:
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðum á suðurhluta Costa Blanca og er staðsettur um 15 kílómetrum norðan við Torrevieja. Bærinn er þekktur fyrir um 10 kílómetra langa strandlengju, umlukta fallegum furuskógi. Þar eru átta víðáttumiklar gullnar sandstrendur, þar á meðal nektarströndin Los Tusales og hin einstaka Pinada-strönd, sem liggur að síbreytilegum sandöldum meðfram strandgönguleiðinni í Guardamar. Úrval fasteigna á svæðinu er fjölbreytt og á strandlengjunni má finna sérstaklega áhugaverðar eignir með stórkostlegu sjávarútsýni.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is