Spánarheimili kynnir: Nýtt íbúðaverkefni með íbúðum sem bjóða upp á 2 svefnherbergi og 1 eða 2 baðherbergi, hannaðar með tilliti til þæginda og nútímalegs lífsstíls.
Íbúðirnar eru frá 57 m², með vel skipulögðum og björtum rýmum. Að auki hefur hver íbúð einkaverönd, frá 3,10 m² til 12,90 m², fullkomnar til að njóta útiveru.
Byggingin býður upp á aðlaðandi sameiginlega sundlaug á þakinu, ásamt notalegu chill-out svæði, sem er tilvalið til að slaka á, hitta aðra og njóta útsýnisins. Að auki fylgir hverri íbúð einkabílastæði, sem eykur þægindi og hagkvæmni í daglegu lífi.
Verð frá 145.000 € til 175.000 €
Um svæðið:
San Miguel de Salinas er dæmigert spænskt þorp. Það er staðsett á hæsta punkti í héraði sínu, í suðurhluta Costa Blanca. Bærinn nýtur fallegs útsýnis yfir saltvötnin í Torrevieja og yfir víðáttumikla sítrónu- og appelsínulundi í nágrenninu, sem gerir svæðið sérstaklega hentugt bæði fyrir fasta búsetu og styttri dvalir.
Helstu atvinnugreinar íbúanna eru þjónusta og landbúnaður, þar á meðal ræktun sítróna, melóna og ólífa. Þorpið hefur einstakan miðjarðarhafsblæ, þar sem hægt er að njóta vikulegs markaðar, heimsækja staðbundnar verslanir og taka þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Til dæmis er San Miguel-dagurinn haldinn árlega, þann 29. september, og hátíðarhöld hefjast viku fyrr.
Matarmenning heimamanna einkennist af hefðbundnum og næringarríkum sveitamat, þar á meðal „gazpacho manchego“, matarmiklum rétti úr tómötum, sérstöku brauði og grænmeti ásamt kanínukjöti, hrísgrjónum og soði.
Allt þetta, og margt fleira, gerir bæinn að einum vinsælasta áfangastaðnum fyrir þá sem leita að heimili undir sólinni eða vilja njóta frís á Miðjarðarhafsströndinni. Öll þjónusta er innan seilingar í þessu litla og heillandi þorpi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is