Spánarheimili kynnir: Glæsilega íbúð í nýjum íbúðakjarna í Playa Flamenca þar sem stutt er í næstu þjónustur eins og matvörubúðir, verslanir og veitingastaði.
Íbúðin er hönnuð í nútímalegum stíl þar sem eldhús og stofa er í opnu rými með aðgengi út á svalir þar sem þú hefur glæsilegt útsýni yfir miðjarðarhafið.
Íbúðin sjálf eru 84 m2 með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
Megnið af innbúinu fylgir með.
Þessi íbúðakjarni er með sameiginlegri sundlaug ásamt líkamsrækt með Sauna og svo fylgirrúmgott einkabílastæði í bílakjallara og geymsal með eigninni.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is