Spánarheimili kynnir:
Fjarkahús á tveimur hæðum í eftirsóttu hverfi í Villamartin.
Eignin er í lokuðum kjarna með sameiginlegri sundlaug staðsett á frábærum stað, göngufjarlægð frá mörgum veitingastöðum og nokkrum mínútum frá Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni.
Fyrir framan húsið er einkabílastæði og verönd fyrir framan útidyrahurðina. Þegar gengið er inn er stórt alrými með stofu, borðstofu og opnu eldhúsi. Það er eitt svefnherbergi á jarðhæðinni og eitt baðherbergi.
Þegar þú kemur upp stigan finnur þú tvö önnur svefnherbergi og eitt baðherbergi. Frá báðum svefnherbergjunum á efri hæðinni er aðgengi út á rúmgóðar svalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.