Spánarheimili kynnir: Efri sérhæð í lokuðum íbúðakjarna í Torrevieja.
Eignin er með 1 svefnherbergi, fullbúnu baðherbergi með sturtu og glugga, opið eldhús, og þægilegri stofu og borðstofu með aðgangi að 15 m² verönd, fullkominni til að njóta útiveru. Að auki fylgir 15 m² einkagarður með grillaðstöðu og sérinngangi, sem veitir bæði næði og fjölbreyttan nýtingarmöguleika. Eignin snýr norðaustur,
Bústaðurinn er staðsettur í lokuðu íbúðasvæði með sameiginlegri sundlaug og rúmgóðum grænum svæðum, í rólegu og vel við höldnu umhverfi. Íbúðin er seld fullbúin húsgögnum og tækjum, tilbúin til afhendingar.
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is