Spánarheimili kynnir:
Til sölu rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á þremur hæðum, staðsett í hinu vinsæla La Regia hverfi á Orihuela Costa á Spáni. Eignin stendur á stórri lóð og býður upp á bílastæði inn á lóð, einkasundlaug og gott útisvæði sem henta vel til útiveru og afslöppunar.
Húsið skiptist í 5 svefnherbergi og 3 baðherbergi og býður upp á mikið svefnpláss, sem gerir eignina einstaklega hentuga fyrir stórar fjölskyldur
Staðsetningin er frábær, með stutt í allar þjónustur á svæðinur eins og veitingastaði, verslanir. Auk þess eru strendur svæðisins í næsta nágrenni.
Eignin er skráð í íslensku hlutafélagi, sem einfaldar kaupferlið verulega þar sem kaupandi kaupir hlutafélagið sjálft. Það fylgir einnig Bíll með eigninni.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.