Spánarheimili kynnir:
Íbúð í íbúðarblokk í miðbæ Torrevieja þar sem stutt er í næstu þjónustu og veitingastaði á svæðinu, einnig er göngufjarlægð á næstu strönd
Um er að ræða íbúð með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, stofu/borðstofu og frá stofunni er gengið út á svalir
Það er lyfta í blokkinni og á þakinu eru sameignilegar þaksvalir sem hægt er að nota
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.