Spánarheimili kynnir: Vel staðsetta íbúð á jarðhæð í Torrevieja. Íbúðin er staðsett aðeins örfáum metrum frá Playa del Cura-ströndinni og með þægilgu aðgengi þar sem gengið er beint inn í íbúðina frá götuunni.
Íbúðin er 90 m² að stærð og skiptist í þrjú svefnherbergi, eitt fullbúið baðherbergi, rúmgott eldhús með sér þvottahúsi og bjarta og rúmgóða stofu og borðstofu — fullkomið rými til að njóta með fjölskyldu eða vinum.
Frábær staðsetning með öllum helstu þjónustum í nágrenninu: matvöruverslanir, veitingastaðir, almenningssamgöngur og afþreying.
Nánar um svæðið:Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra allt árið um kring, borgin brosir ætíð mót hafinu. Hún er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is