Spánarheimili kynnir: Nýjan íbúðakjarna í San Miguel sem er dæmigerður spænskur bær sem býður upp alla nauðsynlega þjónustu eins og matvöruverslun, veitingastaði, apótek, banka og fleira.
Um er að ræða ýmist efri eða neðri hæðir sem eru ca. 65 m² með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og eru hannaðar í nútímalegum stíl með opnu skipulagi þar sem eldhús og stofa tengjast í opnu rými
Íbúðir á jarðhæð eru með einkaverönd/garði og íbúðir á efri hæð eru með einkaþaksvalir
Á svæðinu er mikil uppbygging og hér er um að ræða íbúðakjarna sem samanstendur af efri og neðri sérhæðum með tveimur sameiginlegum sundlaugum
Verð frá 199.900€ - 239.900€
Nánar um svæðið:
San Miguel de Salinas er dæmigerður spænskur bær. Staðsettur á hæsta punkti sveitar sinnar við Costa Blanca suður. Bærinn nýtur útsýnis yfir Torrevieja-saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínu akra í grenndinni sem meðal annars gerir hann ákjósanlegan jafnt til fastrar búsetu sem og styttri dvalar. Helsti iðnaður bæjarbúa er þjónusta og landbúnaður svo sem sítrónurækt, melónu- og ólífurækt. Bærinn býr yfir sjarma Miðjarðarhafsþorpsins. Þar má njóta viku markaðarins, sækja hellana í bænum heim eða taka þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Dýrlingadagur San Miguel er til dæmis haldinn hátíðlegur ár hvert og hefjast hátíðarhöld jafnan viku fyrir dýrlingadaginn sjálfan sem er 29. september. Matarmenning bæjarbúa einkennist af hinum hefðbundna næringarríka sveitamat „gazpacho manchego“ – girnilegur réttur unnin úr tómötum, sérstöku brauði og grænmeti ásamt kanínukjöti, hrísgrjónum og soði. Allt þetta og margt fleira gerir bæinn að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja komast í frí við Miðjarðarhafsströndina. Öll þjónusta er innan seilingar í þessum sjarmerandi litla bæ.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is