Spanarheimili kynnir: Glæsilegar og nútímalegar íbúðir á fyrstu hæð á hinu rómaða Las Colinas svæði.
Íbúðirnar eru frá 133 m² upp í 146 m² og hafa að geyma þrjú svefnherbergi, tvö fullbúin baðherbergi ásamt gestasnyrtingu. Eldhús er opið við stofu með útgengi út á 42 fm svalir em henta vel til að njóta umhverfisins og veðurbliðunnar Útsýnið sameinar sjóinn og golfvöllinn og skapar rólegt og notalegt andrúmsloft.
Íbúðakjarninn býður upp á sameiginleg svæði með vel hirtum görðum og sundlaugum fyrir íbúa.
Öllum íbúðum fylgir bílastæði og geymsla.
Um svæðið:
Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið eitt besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbbi á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð er á svæðinu og auk þess tennis- og körfuboltavellir. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is