Spánarheimili kynnir: Við kynnum þér þetta nýbyggða íbúðarhúsnæði sem er staðsett á efri hæð með sérinngangi og einkaþaksólpalli. Íbúðin hefur ekki verið í notkun og býður upp á hagkvæma skiptingu með tveimur svefnherbergjum sem eru með fataskápum og tveimur fullbúnum baðherbergjum með gólfhitun. Eldhús í amerískum stíl er innbyggt í stofuna og fylgja heimilistæki með. Loftkæling er þegar uppsett og íbúðin er að hluta til húsgögnum búin.
Einn af áhugaverðustu eiginleikum eignarinnar er rúmgóður þaksólpallur, með nægu plássi fyrir útieldhús, setusvæði og sólbekki. Eignin er hluti af fjölbýlishúsi með sameiginlegri sundlaug og grænum svæðum, og með fylgir einnig óþakinn bílastæði.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is