Spánarheimili kynnir: Glæsilegt, nútímalegt einbýliushús sem er staðsett á hinu eftirsótta svæði Villamartín í Orihuela Costa. Húsið er staðsett aðeins í stuttri fjarlægð frá Villamartín golfvellinum, verslunarmiðstöðvum, veitingastöðum og frábæru ströndum Orihuela Costa.
Eignin býður upp á rúmgott alrými með bjartri og loftgóðri stofu og borðstofu sem tengist beint við opið eldhús. Fyrir þá sem vilja lúxus í daglegu lífi er einnig að finna gufubað í húsinu – þinn eigin heilsulindarstaður heima fyrir.
Þessi eign hefur einstaka eiginleika meðal annars er innbyggð Sauna í húsinu, þaksvalir, einkasundlaug og stór garður
Húsið er hannað með það í huga að sameina nútímalega hönnun og Miðjarðarhafsstíl Húsið situr á 227 m² einkalóð og er flott útisvæði og einkasundlaug sem hentar einstaklega vel til að slaka á og njóta sólríkra daga.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is