Spánarheimili kynnir: Glæsilegt einbýlishús ( Lavanda villu), staðsetta á hinu virta svæði Santa Rosalía Lake & Life Resort. Hún samanstendur af þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum, þar af eitt en suite. Rúmgóðri og bjartri stofu/borðstofu með opnu eldhúsi. Húsið er fullbúið húsgögnum og öllum heimilistækjum. Í kjallaranum er sameiginlegt rými með bar, þvottahúsi, svefnherbergi og fullbúnu baðherbergi. Gott útisvæði með veröndum, svölum og þaksvölum með útsýni yfir lónið.
Um svæðið:
Santa Rosalía er einstakt svæði sem státar af stærsta manngerða lóni Evrópu. Svæðið er í örri þróun og staðsett á Costa Cálida, aðeins um 20 mínútna akstur frá Torrevieja. Þorpið Los Alcázares er í göngufæri, þar sem finna má úrval veitingastaða, matvöruverslana og alla hugsanlega þjónustu.
Ferðamannasvæðið Santa Rosalía hefur verið hannað með það að markmiði að íbúar geti notið og slakað á. Þar eru víðáttumikil græn svæði með leiktækjum fyrir börn og fullorðna, og fjölbreytt úrval íþróttaiðkunar, eins og körfubolta, golf og strandblak. Göngu- og hjólastígar liggja um allt svæðið og bjóða upp á frábært tækifæri til að nýta sér lautarferðir og grill með fjölskyldunni. Að lokum, og ekki síst, er þar kristaltært og notalegt lón þar sem hægt er að stunda vatnaíþróttir, auk klúbbhúss með veitingastað og líkamsræktaraðstöðu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is