Spánarheimili kynnir: Glæsileg 113-116fm einbýlishús á einni hæð staðsettar í Vistabella Golf Resort. Um er að ræða lokað hverfi með öryggisgæslu allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Hverfið er aðeins í 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Einstakt umhverfi við golfvöll með öllum helstu þægindum, eins og verslunum, veitingastöðum og fyrsta flokks íþróttaaðstöðu. Svæðið er sérstaklega vinsælt þar sem það hefur mikið upp á að bjóða fyrir flesta.
Húsin skiptast í þrjú rúmgóð svefnherbergi og tvö fullbúin baðherbergi, stofu og eldhús. Hverju húsi fylgir einnig gott útisvæði og einkasundlaug ásamt þaksvölum sem eru á bilinu 71-81fm. Fullkomið útisvæði til að njóta og slaka á. Húsin eru tilvalin bæði sem heilsársbúseta og fyrir ógleymanlegt frí.
Húsin standa á á 298,42m² upp í 454,23m² lóðum og er skipulag þeirra hannað til að nýta hvern einasta fermetra sem best.
Verð frá 469.900 € upp í 599.900 €.
Um svæðið: Vistabella Golf er glæsilegur 18 holu golfvöllur staðsettur á Costa Blanca svæðinu á Spáni. Völlurinn er hannaður fyrir kylfinga á öllum getustigum og býður upp á vel hirtar brautir, breið svæði og fallegt landslag. Á svæðinu eru einnig veitingastaðir, barir, líkamsræktarstöð og matvöruverslun, ásamt fjölbreyttri þjónustu sem gerir Vistabella að frábærum stað fyrir bæði íbúa og ferðalanga. Svæðið er rólegt og fjölskylduvænt með góðu aðgengi að ströndum, stærri bæjum og helstu þjónustu á Costa Blanca.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is