Spánarheimili kynnir: Nýjan kjarna í framkvæmdum á flottum stað í Pilar de la Horadada þar sem stutt er í næstu þjónustu og veitingastaði og örstutt frá næstu strönd.
Kjarninn samanstendur af fjölbýlishúsum með neðri og efri sérhæðum ásamt grænum svæðum með sameiginlegri sundlaug, barnaleiksvæði, líkamsrækt og bílakjallara.
Neðri sérhæðirnar koma með einkagörðum og eru með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum ásamt eldhúsi sem er opið við borðstofu/stofu og frá stofunni er útgengt út í garð.
Efri sérhæðirnar koma með einka 51 m2 þaksvölum og tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum ásamt eldhúsi sem er opið við borðstofu/stofu og frá stofunni er útgengt út á svalir.
Stærð frá 60 m2 - 68 m2
Verð frá: 280.000 € - 355.000 €.
Þessar eignir verða tilbúinar til afhendingar í júní, ágúst og október 2027
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Pilar de la Horadada er staðsett 3 kílómetra frá ströndinni við El Mojon. Svæðið er í um það bil 25 mínútna akstursfjarlægð norður af Murcia San Javier flugvellinum og um það bil einnar klukkustundar aksturs suður af flugvellinum í Alicante. Pilar de la Horadada er fullkomlega staðsett nálægt öruggum sandströndum Mar Menor. Svæðið er að mestu leyti landbúnaðarsvæði; umkringt markaðsgörðum, aldingarði, sítruslundum og sveitabæjum. Hann er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar hefur þar átt sér stað mikil uppbygging á umliðnum árum. Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli sem fullyrða má að séu verðlögð á afar sanngjarnan máta.