Spánarheimili kynnir: Vorum að fá þetta vel staðsetta raðhús með þremur svefnherbergjum í lokuðum kjarna rétt við ströndina í Cabo Roig. Húsið hefur verið endurnýjað að hluta og er í mjög góðu ástandi.
Jarðhæð: Komið er inní stofu og þar innaf er eldhús. Úr eldhúsi er gengið inn í þvottahús.
Á hæðinni er einnig baðherbergi með sturtu sem allt hefur verið tekið í gegn.
Önnur hæð: Á annari hæð eru tvö svefnherbergi með hjónarúmum og nýjum fataskápum. Útgengt er út á svalir úr hjónaherberginu. Baðherbergi hæðarinnar er staðsett á milli herbergja og hefur það allt verið endurnýjað.
Á þriðju hæð er eitt svefnherbergi með nýjum skápum. Úr herberginu er gengið út á þaksvalir.
Nýjar hurðar eru í öllu húsinu.
Húsið snýr í suður og á flísalgaðri veröndinni er tilvalið að njóta sólarinnar allan ársins hring.
Sameiginlegur sundlaugagarður fylgir eigninni og er óhindrað útsýni úr garðinum yfir sjóinn.
Um er að ræða frábæra eign á einstakri staðsetningu, hvort heldur sem er fyrir fjölskyldur að njóta eða sem fjárfestingartækifæri með ströndina og matsölustaði í innan við 2ja mínútna göngufæri.
Verð 247,000€
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.