Hér kynnum við til sölu flotta eign sem er staðsett í Lomas de Cabo Roig, í rólegum og fallegum íbúðakjarna með sameiginlegri sundlaug og bílastæði í bílakjallara. Frábær staðsetning aðeins 2 km frá næstu strönd og í göngufæri frá úrvali veitingastaða
Um er að ræða íbúð á efri hæð með stórum einkaþaksvölum með rúmgóðri geymslu þar sem hægt væri að gera fjórða svefnherberið.
Þessi íbúð samanstendur af rúmgóðri og bjartri stofu með opnu eldhúsi, þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og þvottahúsi. Hjónaherbergið er með einkabaðherbergi og svalir með útsýni yfir sundlaugina og grænu svæðin í nágrenninu
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.