Við kynnum þessa flottu eign til sölu. Um er að ræða íbúð á jarðhæð með tveimur einka veröndum staðsett í eftirsótta Vista Azul íbúðakjarnanum í Punta Prima, sem býður upp á stórt sameiginlegt svæði með tveir sameiginlegar sundlaugar, ein þeirra er aflokuð og er þá hægt að nota yfir vetratíman.
Það er flottur verslunarkjarni í gögnufjarlægð frá íbúðinni og þar er hægt að finna matvörubúð, margskonar veitingastaði og aðrar þjónustur. Einnig er mjög stutt að fara til að komast á næstu strönd eða í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina.
Íbúðin er með tveimur svefherbergjum og tveimur baðherbergjum, eldhúsi sem er opið til stofu og frá stofu er aðgengi út a bakveröndina.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.