Við kynnum til sölu þessa tveggja svefnherbergja íbúð sem er staðsett á frábærum og eftirsóttum stað í Playa Flamenca með margar þjónustur og veitingastaði í göngufæri ásamt vinsæla markaðnum sem er alla laugardaga. Það er einnig stutt í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina og á allar flottu strendur sem hægt er að finna á Orihuela Costa svæðinu
Hér er um að ræða flott íbúð á efri hæð með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, rúmgóðri stofu og opnu eldhúsi. Það eru einnig þaksvalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar og útsýni yfir græn svæði í kring.
Íbúðin er staðsett í íbúðahverfi sem hefur margt upp á að bjóða, það er fótbolta og körfubolta völlur, tennisvellir, stórt og mikið leiksvæði og stór sameiginleg sundlaug sem íbúar hverfisins fá afnot af
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.