Við kynnum til sölu tveggja svefnherbergja bungalow með þaksvölum i lokuðum kjarna.
Um er að ræða eign á tveimur hæðum auk þaksvala á efstu hæð. Eignin var nýlega máluð og endurnýjuð að hluta. Eignin er í litlum, lokuðum kjarna og stendur ofarlega í Los Almendros hverfinu, stutt frá La Florida. Kjarninn er aflokaður en innan svæðis er sameiginleg sundlaug.
Gengið er inn í lítinn garð sem snýr í suður, þaðan er gengið inn í eignina og í opið rými. Á jarðhæð er opið eldhús, salerni, lítil geymsla og setustofa. Að auki er útgengi í bakgarðinn úr eldhúsi.
Á efri hæð eru tvö svefnherbergi með skápum og baðherbergi með sturtu. Á efstu hæð eru svo þaksvalir með sjávarsýn í fjarska þar sem hægt er að njóta sólarinnar og útiveru allan daginn.
Staðsetningin er góð — stutt í flesta þjónustu, verslanir og veitingastaði á svæðinu.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.