Spanarheimili kynnir: Góða tveggja svefnherbergja íbúð með þaksvölum í Punta Prima, frábær staðsetning.
Við kynnum til sölu þessa fallegu og vel skipulögðu íbúð í rólegu hverfi í Punta Prima. Íbúðin er með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum og einu baðherbergi, eldhús opið við stofu auk svala sem snúa til suðvestur og rúmgóðar þaksvalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar og útiveru allan daginn.
Íbúðin er í kjarna þar sem eru tvær sameiginlegar sundlaugar og snyrtileg sameign. Auk þess fylgir geymsla og þvottahús með íbúðinni sem veitir gott geymslupláss og þægindi.
Staðsetningin er einstaklega góð — stutt í alla helstu þjónustu, verslanir og veitingastaði á svæðinu og einungis örfáir mínútur að næstu strönd.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is