Spánarheimili kynnir: Rúmgott og fallegt einbýlishús á frábærum stað í Los Dolses, Orihuela Costa. Stutt er í verslanir, veitingastaði og aðrar hversdags þjónustur auk þess er stutt í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina og fallegar sandstrendurnar á Orihuela Costa.
Frábært einbýlishús á einni hæð með þaksvölum yfir öllu húsinu ásamt innréttuðum kjallara. Þegar gengið er inn má finna stórt alrými þar sem eldhús og stofa eru samliggjandi, tvö svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Það eru opnanlegar rennihurðir sem gengið er beint út á verönd með sundlaug.
Í kjallaranum eru þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgott stofurými og þvottahús/geymslu
Húsið sjálft er samtals 222 m² að stærð og situr á 245 m² lóð og er með rúmgóða verönd með einkasundlaug og bílastæði inn á lóð.
Við bjóðum einnig upp á sambærilegt hús við hliðina á þessarri eign sem hefur sömu eiginleika
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður svæðinu með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is