Fallegt raðhús til sölu í La Regia, Orihuela Costa, Spáni
Við kynnum með stolti þetta fallega og vel staðsetta raðhús í La Regia/Cabo Roig, Orihuela Costa. Staðsetningin er frábær — þú ert í göngufæri í allar helstu þjónustur eins og veitingastaði, verslanir og fleira. Auk þess er stutt á næstu strönd og á glæsilegu golfvelli á Orihuela Costa svæðinu.
Húsið er 83 m² á tveimur hæðum og samanstendur af 2 svefnherbergjum (einfalt að bæta við þriðja svefnherberginu) og 2 baðherbergjum og er með notalegri verönd að framan. Húsið er staðsett í lokuðu íbúðahverfi með sameiginlegri sundlaug og útiaðstöðu
Nánar um svæðið
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.