Spánarheimili kynnir: Fallegt og vandað einbýlishús sem er staðsett á rólegum stað við hinn vinsæla Las Ramblas golfvöll á Costa Blanca á Spáni. Húsið er á tveimur hæðum með óhindruðu útsýni til sjávar. Húsið var allt tekið í gegn árið 2024. Eignin er vel staðsett rétt við Las Ramblas golfvöllinn.
Nánari lýsing:
Efri hæð: Komið er inn í mjög rúmgott alrými sem hefur að geyma stórt eldhús, borðstofu, stofu og gestasnyrtingu. Úr stofu er gengið út á flísalagða verönd með arin aðstöðu og einkasundlaug og óhindruðu útsýni.
Neðri hæð: Neðri hæðin hefur að geyma fjögur svefnherbergi og eru tvö þeirra með sér baðherbergi innaf og í hjónasvítunni en einnig mjög rúmgott fataherbergi. Eitt baðherbergi með sturtu sem þjónar hinum tveimur herbergjunum er einnig á hæðinni. Fataksápar eru í öllum herbergjum. Útgegnt er úr öllum svefnherbergjum út á flísalagða verönd.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is