Við kynnum þessa einstöku eign til sölu, hún er staðsett á hinu rólega og eftirsótta svæði í Lomas de Cabo Roig. Þú hefur veitingastaði og aðrar þjónustur í nálægð og svo er ekki nema 15 mínútna ganga niður á næstu strönd í Cabo Roig.
Einbýlishús í miðjarðarhafsstíl sem situr á 411 m2 hornlóð með bílastæði inn á lóð og síðan hefur þú stórt og mikið pláss í kringum allt húsið með möguleika að setja upp einkasundlaug. Húsið snýr í austurátt og skín sól á veröndina allan daginn og allan ársins hring, annars eru líka rúmgóðar þaksvalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar
Um er að ræða einstaka eign sem er með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergju. Fyrrum eigendur fjarlægðu eitt svefnherbergi til þess að stækka stofuna þannig það er möguleiki að setja upp þriðja herbergið ef vilji er fyrir því
Fyrrum eigendur eru búnir að endurnýja allt í eigninni
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi