Fallegt einbýlishús með einkasundlaug og þaksvölum í Lomas de Cabo Roig
Við kynnum til sölu glæsilegt 104 m2 einbýlishús á rólegum og eftirsóttum stað í Lomas de Cabo Roig á Orihuela Costa, aðeins örfáum mínútum frá fallegum ströndum Miðjarðarhafsins og er í göngufæri við veitingastaði og aðra þjónustur á svæðinu.
Húsið stendur á 206 m2 lóð með einkasundlaug og stórum þaksvölum sem býður upp á einstakt útsýni og frábæra aðstöðu til að njóta sólarinnar allan daginn
Húsið er hannað í nútímalegum stíl með opnu plani þar sem þú hefur eldhús og stofu í opnu rými og frá stofu er beint aðgengi út á veröndia. Það eru þrjú rúmgóð svefnherbergi og þrjú baðherbergi
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi