Við kynnum þessa frábæru eign sem staðsett er á Orihuela Costa svæðinu, frábær staðsetning í gögnufæri frá veitingastöðum, matvörubúðum og fleiri þjónustu. Einnig er stutt á næstu strendur á Orihuela Costa svæðinu, fjölmargir golfvellir á svæðinu og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er í 5 mínútna akstursfjarlægð
Húsið býður upp á rúmgott útisvæði með einkasundlaug og bílastæði inn á lóð
Þetta er eign á tveimur hæðum með kjallara og þaksvalir og er með 5 svefnherbergi og 4 baðherbergi
Jarðhæðin býður upp á eitt svefnherbergi og baðherbergi ásamt eldhúsi og stofu/borðstofu í opnu rými með aðgengi beint út á verönd
Efri hæðin er með tveimur svefherbergjum og bæði herbergin eru en-suite (með baðherbergjum). Síðan eru stórar og rúmgóðar þaksvalir
Í kjallaranum eru 2 önnur svefnherbergi og eitt baðherbergi ásamt rúmgóðu stofurými
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í sima 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.