Við kynnum til sölu flottar íbúðir í Pilar de la Horadada, sem er spænskur bær í aðeins 15 mínútuna fjarlægð frá Orihuela Costa svæðinu.
Þetta eru íbúðir í fjölbýlishúsum á þremur hæðum
Jarðhæðir með stórum einkagarði frá 72,12 m²
Önnur hæð með rúmgóðum svölum frá 22,66 m²
Þakíbúðir með svölum og einkaþaksvölum frá 71,50 m² með fallegu sjávarútsýni,
Um er að ræða íbúðir sem eru með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Þessar íbúðir eru hannaðar þannig að eldhúsið og stofan eru í opnu rúmgóðu rými og frá stofunni er aðgengi út á svalir/verönd
Þessi íbúðakjarni er með sameiginlegum garð með sundlaug og það er einkabílastæði og geymsla með hverri íbúð
Verð frá €409.900 til €599.000
Innifalið í verði er loftkæling (heitt og kalt), eldhústæki (White goods), húsgögn og ljós
Tilbúið til afhendingar sumarið 2026
Nánar um svæðið
Pilar de la Horadada er staðsett 3 kílómetra inn í landið frá ströndinni við El Mojon að telja. Dvalarstaðurinn er í um það bil 25 mínútna akstursfjarlægð norður af Murcia San Javier flugvellinum og um það bil einnar klukkustundar aksturs suður af flugvellinum í Alicante. Pilar de la Horadada er fullkomlega staðsett nálægt öruggum sandströndum Mar Menor. Svæðið er að mestu leyti landbúnaðarsvæði; umkringt markaðsgörðum, aldingarði, sítruslundum og sveitabæjum. Hann er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar hefur þar átt sér stað mikil uppbygging á umliðnum árum. Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli sem fullyrða má að séu verðlagt á afar sanngjarnan máta.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is