Við kynnum þetta nýja verkefni, 7 hæða fjölbýlishús sem er staðsett á frábæru svæði í San Miguel. Einstakt tækifæri til að opna nýtt heimili í nútímalegu og hagnýtu umhverfi. Þessi kjarni er aflokaður og hefur sameiginlega sundlaug sem eigendur fá afnot af og auk þess er bílakjallari og hver íbúð hefur sitt einkabílastæði. Einnig munu litlu börnin geta notið leiksvæðis sem er sérhannað fyrir þau
Íbúðirnar eru á milli 70 m² og 75 m² með 2 svefnherbergjum og 2 fullum baðherbergjum. Íbuðirnar eru hannaðar í nútímalegum stíl með opnu skipulagi þar sem eldhús og stofa eru í opnu rými og frá stofu er aðgengi út á verönd/svalir á bilinu 20m² til 69m²
Að auki, ef þú kaupir heimili þitt fyrir 30. júlí 2025 færðu sérstaka kynningu sem inniheldur:
-Húsgagnapakki
-Pakka með heimilistækjum (hvítarvörur)
- Loftkæling heitt/kalt (loftkæling)
- Öryggisinngangshurð
- Bílastæði innifalið
- Opin neðanjarðargeymsla og hjólasvæði
- Vatnskútur
- Rafmagnsgardínur
Verð frá € 219.000 til € 309.000
Afhent frá desember 2026.
Um svæðið:
Hinn dæmigerði spænski bær er San Miguel de Salinas. Hann er staðsettur á hæsta punkti sveitar sinnar við Costa Blanca suður. Bærinn nýtur útsýnis yfir Torrevieja-saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínu akra í grenndinni sem meðal annars gerir hann ákjósanlegan jafnt til fastrar búsetu sem og styttri dvalar. Helsti iðnaður bæjarbúa er þjónusta og landbúnaður svo sem sítrónurækt, melónu- og ólífurækt. Bærinn býr yfir sjarma Miðjarðarhafsþorpsins. Þar má njóta viku markaðarins, sækja hellana í bænum heim eða taka þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Dýrlingadagur San Miguel er til dæmis haldinn hátíðlegur ár hvert og hefjast hátíðarhöld jafnan viku fyrir dýrlingadaginn sjálfan sem er 29. september. Matarmenning bæjarbúa einkennist af hinum hefðbundna næringarríka sveitamat „gazpacho manchego“ – girnilegur réttur unnin úr tómötum, sérstöku brauði og grænmeti ásamt kanínukjöti, hrísgrjónum og soði. Allt þetta og margt fleira gerir bæinn að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja komast í frí við Miðjarðarhafsströndina. Öll þjónusta er innan seilingar í þessu sjarmerandi litla bæ.