Spánarheimili kynnir: Þessi flottu einbýlishús í annarri línu við lónið á hinu stórglæsilega íbúðarsvæði Santa Rosalía. Einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þá þjónustu sem hægt er að hugsa sér.
Um er að ræða eignir sem hægt er að fá með annaðhvort tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, eldhúsi er opið við stofu þaðan sem útgengt er út á veröndog. Húsin standa á 172m2 lóðum með möguleika á að bæta við einkasundlaug gegn auka gjaldi ásamt þakverönd ef vilji er fyrir því.
Þetta eru eignir sem eru byggðar með hágæða efnum og í nútímalegum stíl.
Verð frá 365.000€ - 410.000€
Nánar um svæðið
Santa Rosalía er algjörlega einstakt svæði með stærsta manngerða lóni í Evrópu. Svæðið er í mikilli uppbyggingu en Santa Rosalía er staðsett á Costa Cálida ströndinni sem er í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Torreviejasvæðinu. Bærinn Los Alcázares er í göngufæri og þar er meðal annars að finna úrval veitingastaða, matvörubúðir og alla þjónustu sem hægt er að hugsa sér. Santa Rosalía Resort er sérhannað fyrir íbúa til þess að njóta og slaka á. Innan svæðisins er að finna stór græn svæði með leiksvæði fyrir börn og fullorðna og þar er hægt að stunda hinar ýmsu íþróttir, s.s. körfubolta, golf, og strandblak. Hlaupa- og hjólastígar liggja umhverfis allt svæðið og upplagt er að nýta piknikk svæðin til að grilla með stórfjölskyldunni. Síðast en ekki síst er þarna að finna kristaltært og seiðandi lónið þar sem hægt er að stunda fjölbreytt vatnasport sem og klúbbhús með veitingahúsi og líkamsræktaraðstöðu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is