Við kynnum þennan íbúðarkjarna sem er staðsettur á frábærum stað með fallegu útsýni yfir bleika saltvatnið í Torrevieja og er stutt frá næstu nauðsynlegri þjónustu og veitingastöðum svo sem bari, veitingastaði, matvöruverslanir og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina
Þessi kjarni samanstendur af 104 íbúðum, með 2 og 3 svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
Íbúðirnar á efri hæð bjóða upp á fallegt útsýni yfir saltlónið, en íbúðirnar á jarðhæð eru með stórum veröndum sem opnast út á fallegt grænt svæði
Íbúar munu njóta sameiginlegt svæði þar á meðal falleg græn svæði og tvær stórar sundlaugar
Kjarninn býður einnig upp á bílastæði í bílakjallara og geymslu gegn aukagjaldi upp á 15.000 evrur.
Verð frá € 275.000 til € 325.000
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.