Kynnum til sölu eign sem nýlega er búið að taka í gegn og endurnýja. Eignin er staðsett í La Florida hverfinu í Orihuela Costa, með margar veitingastaði og nauðsynlegar þjónustur í göngufæri. Þú ert í aðeins 5 mínútur að keyra að Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni og 10-15 mínútur niður á strönd.
Um er að ræða eign sem er tveggja herbergja og 1 baðherbergi. Komið er inn í opið stofurými og þaðan er gengið í eldhúsið. Frá eldhúsinu er gangur með baðherberginu og tveimur herbergjum. Það eru loftkælingartæki í öllum herbergjum hússins.
Þessi eign er með flotta og rúmgóða verönd með innkeyrslu og bílastæði inn á lóðinni ásamt flottu útieldhúsi og aðstöðu. Það er einnig aflokað geymslurými við útidyrahurðina.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.