Spánarheimili kynnir: Nýjan og spennandi kjarna af íbúðum, parhúsum og einbýlishúsum. Þessi kjarni samanstendur af sameiginlegum garði með barnaleiksvæði og sameiginlegri sundlaug og er staðsett á Vistabella Golf.
Hér er um að ræða raðhús á tveimur hæðum ásamt einaþaksvölum, en í húsinu eru þrjú svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Á jarðhæðinni er rúmgóð stofa þar sem opið er inn i eldhús ásamt einu svefnherbergi og einu baðherbergi. Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi þar sem baðherbergi er inn af öðru svefnherberginu og frá þessari hæð er gengið út á svalir þar sem stigi er upp á einkaþaksvalir með góðu útsúni í allar áttir.
Eldhúsið fylgir innréttað með White Goods, sem er þá ísskápur, ofn o.s.frv. ásamt golfhita inn á baðherbergjum.
Einnig munu fylgja 50 golfhringir á Vistabella golfvellinum þegar þú festir þér eign í þessum kjarna.
Verð frá 305.000€ - 339.000€
Vistabella golfsvæðið er öryggisvaktað 24/7 og er í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Einstakt golfvallarumhverfi með öllum þægindum svo sem verslunum, veitingastöðum og fyrsta flokks aðstöðu til íþróttaiðkana. Svæðið er sérlega vinsælt enda margt og mikið fyrir flesta.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is